Fréttir

Framlag til sveitarfélaga vegna endurgreiðslu á hækkun tryggingagjalds - 19.3.2010

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga sett vinnureglur um úthlutun og greiðslur framlags að fjárhæð 1.200 milljónir króna  til að mæta hækkun á launakostnaði sveitarfélaga í kjölfar hækkunar á tryggingagjaldi úr 7% í 8,65% á árinu 2010. 

Lesa meira
 

Eldri fréttir...


Starfsemi

Hafnarhúsið við TryggvagötuJöfnunarsjóður sveitarfélaga starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnar-ráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs, en honum til ráðuneytis er fimm manna ráðgjafarnefnd sem skipuð er til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

Fjórir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en einn er skipaður af ráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.

Lesa meira...

Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs 2009

Forsíða ársskýrslu jöfnunarsjóðs 2008 Í skýrslunni eru lagðir fram reikningar og greint frá helstu þáttum í starfi sjóðsins á síðasta ári. Skýrslan var lögð fram á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í október 2009.

Ársskýrsla 2009

Fréttabréf

Fréttabréf Jöfununarsjóðs 3tbl. 2008 Í 3 tölublaði af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur á árinu 2008 er m.a. að finna upplýsingar um greiðslur almennra húsaleigubóta á II. ársfjórðungi 2008 ásamt upplýsingum um greiðslur sérstakra húsaleigubóta.

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs um húsaleigubætur 3. tbl. 2008

Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica