Tekjur sjóðsins
Tekjur sjóðsins
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eru tryggðar fastar tekjur með eftirfarandi hætti:
- Framlag úr ríkissjóði sem nemur 2,12% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs.
- Árlegt framlag úr ríkissjóði sem nemur 0,264% af álagningarstofni útsvars vegna næstliðins tekjuárs.
- Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga sem nema 0,77% af álagningarstofni útsvars hvert ár (tilkomið vegna yfirfærslu grunnskólans).
- Vaxtatekjur.
